Reykjavík 30 júlí 2025.
Nú eru að hefjast skýrslutökur hjá RLS vegna kæru okkar á hendur utanríkisráðherra Íslands vegna frumvarps hennar um Bókun 35 þar sem hún er sökuð um landráð.
Nokkrir aðilar hafa lýst sig reiðubúna til skýrslutöku, sem ekki er flókið ferli og sem ekki krefst lögfræðikunnáttu þó hún skemmi ekki fyrir.
Til að viðkomandi aðili að kærunni geti komið fram fyrir hönd hópsins, þarf hópurinn eða hluti hans, að samþykja nafnalistann (helst með rafrænni staðfestingu).
Listinn verður sendur hópnum þegar hann er tilbúinn og haldinn verður sérstakur fundur með lögmanni hópsins, Arnari Þór Jónssyni fyrir skýrslutökuna.
Vinsaml. sendið tölvupóst á
og segið okkur ykkar álit á þessum ofangreindum atriðum.
Þessi heimasíða, þjóðfrelsi.is er tilkomin í tilefni af því að 30 Íslendingar hafa kært utanríkisráðherra Íslands, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir landráð vegna frumvarps hennar um innleiðingu á Bókun 35 við EES-samninginn.
(sjá nánar um kæruna undir flipanum Bókun 35).
Ljóst er að þá mun slík kæra útheimta talsverða vinnu og óhjákvæmilegan kostnað þrátt fyrir sjálfboðavinnu.
Nokkrir aðilar utan hópsins hafa haft samband og vilja taka þátt í kærunni, sem er tæknilegur möguleiki og eflaust myndu margir vilja styrkja málefnið með fjárframlögum.
Vinsaml. sendið tölvupóst á
og segið ykkar álit á þessum atriðum: